Port of Akureyri
Fiskitangi
600 Akureyri
Iceland
Tel. +354 460 4200
Fax +354 460 4209
Email port@port.is
Print this page Port of Akureyri - Iceland

G J A L D S K R Á

Hafnasamlags Norðurlands bs. (HN)
Gildir frá 1. janúar 2010

Gjaldskrá fyrir hafnir Hafnarsamlags Norðurlands bs. er sett samkvæmt heimild í 17.grein hafnarlaga nr. 61/2003.
Við ákvörðun hafnagjalda skal miða við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælibréfi, sem gefið er út eftir ákvæðum alþjóðarsamþykktarinnar um mælingu skipa frá 1969.  Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnasjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnanna og njóta þjónustu þeirra.

Skipagjöld

Lestagjöld:  12,05 kr. á mælieiningu.

Af öllum skipum skal greiða lestagjald  kr. 12,05 á mælieiningu en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.  Lágmarksgjald kr. 1.000.-

Bryggjugjöld:

Skip minni en 15.000 BT 5,75 kr. á mælieiningu fyrir hverja byrjaða
24 klst. Skip stærri en 15.000 BT 7,15 kr. á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24
klst.  Lágmarksgjald 8.200 kr.

Heimilt er að taka lesta- og bryggjugjald af fiskiskipum og bátum undir 100 BT sem mánaðargjald, eða daggjald per sólarhring sem nemur 7% af mánaðargjaldi.

Bátar allt að 10BT greiða 6.000 kr. fyrir hvern mánuð.
Bátar yfir 10BT og allt að 20BT greiða 7.000 kr. fyrir hvern mánuð.
Bátar yfir 20BT og allt að 50BT greiða  8.200 kr. fyrir hvern mánuð.
Bátar yfir 50BT og allt að 100BT greiða 12.000 kr. fyrir hvern mánuð.

Skútur og skemmtibátar sem koma til hafnar greiði 50 EURO fyrir hverja byrjaða viku.

Vörugjöld

Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnanna, þó með þeim undantekningum er síðar getur. Farmflytjandi skal skila farmskrá og öðrum nauðsynlegum gögnum til Hafnasamlags Norðurlands bs, vegna álagningar vörugjalda.

Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til erlendra hafna, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.

Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóra eða afgreiðslumanni skips skal láta Hafnasamlag Norðurlands bs í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn.
Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:

1.fl.: Gjald 260 kr. fyrir hvert tonn: 

Bensín, brennsluolíur, kol, laust korn, salt, vikur, sement,  asfalt, steinefni, áburður, úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu.

2.fl.: Gjald 335 kr. fyrir hvert tonn: 

Lýsi, fiskimjöl, fiskafóður og sjávarafurðir.

3.fl.: Gjald 485 kr. fyrir hvert tonn:

Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, útgerðarvörur, smurolíur,  landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda.  Pökkuð og niðursoðin matvæli, áfengar drykkjarvörur og ávextir.

4.fl.: Gjald 1.350 kr. fyrir hvert tonn:

Aðrar vörur, sem ekki eru tilgreindar í 1.-3. fl.

5.fl.: Aflagjald 1,6%

Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum.  Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans.  Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast 35% heildarverðmætis.  Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði.  Kaupanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um keyptan afla mánaðarlega, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu.  Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað.  Kaupandi aflans innheimti gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafnarsjóðs þótt hann vanræki innheimtu  þess.  Standa ber skil á greiðslu aflagjalds eigi sjaldnar en mánaðarlega.
Við sölu afla til skyldra aðila skv. 3. mgr. 9. gr.laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna skal að lágmarki miðað við skiptaverð verðslagsstofu skiptaverðs. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað.

6.fl.: Vörugjöld vegna ferjusiglinga um hafnir Grímseyjar og Hríseyjar:

Almenn vara í stykkjatölu allt að 100 kg. 0 kr.
Almenn vara yfir 100 kg. 465 kr. per tonn
Almenn vara í m3 og búslóðir 260 kr. per mł
Ís, möl, salt, sorp, bein/slóg, sekkir/fiskur 260 kr. per tonn
Bílar, vélar, tæki að 3 tonnum 500 kr. per stykki
Bílar og vélar yfir 3 tonn og bátar 465 kr. per tonn
20 feta gámur, tómur 1.000 kr. per stykki
40 feta gámur, tómur 1.500 kr. per  Stykki
Umbúðir 260 kr. per tonn

Lágmarksgjald í öllum flokkum er 500 kr. per tonn.

Vatns- og rafmagnssala

Rafmagn:

Rafmagn til skipa, báta, verktaka og annara 11 kr. per kwst. 
Rafmagn á frystigám ásamt lóðarleigu 13 kr. kwst.  
Rafmagn á Grímsey, Grenivík og í Hrísey 13,5 kr. per kwst.
Rafmagnstengigjald 2.240 kr. per skipti.
Ef tenging fer fram utan reglubundis vinnutíma, greiðist útkall 4.700 kr. per klst.
Fyrir útkall í Grímsey og Hrísey greiðast 3.570 kr. per klst.  
Lágmarksútkall er 4 klst.

Vatn:

Kalt vatn 250 kr. per mł. 
Lágmarksgjald 2.500 kr
Ef tenging fer fram utan reglubundis vinnutíma, greiðist útkall 4.700 kr. per klst.
Fyrir útkall í Grímsey og Hrísey greiðast 3.570 kr. per klst.
Lágmarksútkall er 4 klst.

Hafnsögugjald

Samkvæmt hafnarreglugerð fyrir Hafnasamlag Norðurlands bs. er öllum skipum lengri en 100 m, að undanteknum innlendum fiskiskipum, skylt að taka hafnsögumann við siglingu um hafnasvæði Samlagsins.
Fyrir leiðsögn til hafnar, að bólvirki eða lægi skal greiða 4,8 kr. fyrir hvert brúttótonn. Fyrir leiðsögn frá bólvirki eða lægi og úr höfn greiðist sama gjald. Fyrir leiðsögn um höfn skal greiða hálft hafnsögugjald.  Hafnsögugjald skal þó aldrei vera lægra en 30.000 kr. 
Hafnarstjóra er heimilt að veita skipstjóra skips sem skylt er að lúta hafnsögu skv.  þessari grein, undanþágu frá hafnsögu sbr. hafnarreglugerð nr. 287/2005 með síðari breytingum.

Leiðsögn til annara hafna er skv. samningi hverju sinni.

Þjónusta dráttarbáta

Tímagjald fyrir aðstoð dráttarbáta miðast við brúttóstærð skips, og er 6,7 kr. fyrir hvert brúttótonn.
Lágmarksgjald á klst. er 33.000 kr. og hámarksgjald kr. 180.000 kr. Lágmarkstími fyrir aðstoð er 1 klst.
Fylgi dráttarbátur skipi til öryggis í eða úr höfn, er tekið hálft gjald. 
Fluttur hafnsögumaður: Fast gjald 20.000 kr.
Þegar dráttarbátur flytur hafnsögumann og aðstoðar einnig skipið, fellur gjald fyrir flutning hafnsögumanns niður.

Upptökumannvirki.

Flotkví, 5.000t. Upptökugjald er 750.000 kr. og stöðugjald er 100.000 kr. á sólarhring. 
Dráttarbraut, 1.000t. Upptökugjald er 600.000 kr. og stöðugjald er 60.000 kr. á sólarhring.
Dráttarbraut, 100t.  Upptökugjald er 180.000 kr. og stöðugjald er 13.000 kr. á sólarhring.

Móttaka skipa.

Festargjald fyrir hverja komu / brottför fyrir hvern mann er 9.200 kr. í dagvinnu. Í yfirvinnu er það 13.200 kr.
Þegar skip leggur að bryggju skal a.m.k. einn starfsmaður hafnarinnar taka á móti því, en þó er heimilt að veita undanþágu frá þessari reglu í sérstökum tilfellum.

Siglingavernd

Við komu skipa, sem falla undir ákvæði laga um siglingavernd nr. 50/2004, ber að greiða eftirtalin gjöld:
Farþegavernd 75 kr. per farþega
Öryggisgjald á hverja skipakomu 32.000 kr.
Öryggisgæsla per. öryggisvörð í dagvinnu 3.550 kr. per klst.
Öryggisgæsla per. öryggisvörð í yfirvinnu  6.250 kr. per klst.
Öryggisgjald vegna farmverndar 0 kr.


Geymslugjald á gámum á haftasvæði.

Geymslugjald á 20 feta gámi í 1 sólahring 310 kr. 
Geymslugjald á 40 feta gámi í 1 sólahring 640 kr. 
Geymslugjald á 20 feta frystigámi í 1 sólahring 920 kr. (innifalið rafmagn).
Geymslugjald á 40 feta frystigámi í 1 sólahring 1.350 kr. (innifalið rafmagn).

Lóðarleiga

Önnur lóðarleiga sem ekki er haftasvæði

Gámaleiga á opnum svæðum 6.000 kr. á mánuð.   
Lóðarleiga fyrir frágengin svæði með bundnu slitlagi 77 kr. per ferm. á mánuði.   
Lóðarleiga fyrir frágengin svæði án bundins slitlags 44 kr. per ferm. á mánuði.   
Lóðarleiga skal vera 30.00 kr. per ferm. á mánuði fyrir önnur svæði.

Vigtargjald

Almenn vigtun á lönduðum afla 130 kr. á tonn.
Lágmarks fyrir einstaka vigtun á krókavog 1.100 kr. 
Flutningabílar og skoðun pr. skipti á bílavog 1.700 kr.  
Vigtanir á bílavog 5-15 vigtanir í mánuði 1.250 kr. per skipti     
Vigtanir á bílavog 16-30 vigtanir í mánuði 1.050 kr. per skipti    
Vigtanir á bílavog 31 vigtanir í mánuði eða fleiri 850 kr. per skipti     
 

Útkall milli kl. 17:00 og 08:00 virka daga, svo og um helgar, greiðist sérstaklega 4.700 kr. per klst. Yfirvinna vigtarmanns í Hrísey per klst. er 3.570 kr. Ef yfirvinna og útkall er unnið fyrir fleiri en einn samtímis skiptist kostnaðurinn. Lágmarksútkall er 4 klst.

Fyrirtæki sem hafa heimavigtunarleyfi og skila upplýsingum um landaðan afla til HN, sem síðan þarf að skrá í Gaflinn greiða skráningargjald 21,3 kr. per tonn.

Gjöld fyrir smábáta á föstum viðlögum.

Legufæragjald almennt á ári 43.000 kr. á ári
Legufæragjald almennt (70ára og eldri) á ári 21.000 kr. á ári
Legufæragjald harðviðarbryggja á Akureyri 60.000 kr. á ári
Viðlegugjald við (flot)bryggjur 90.000 kr. á ári
Legurfæragjald í allt að 6 mánuði 26.000 kr.
Uppistöðugjald á mánuði 3.100 kr.
Rafmagnssnúra til smábáta per. sólarhring 50 kr.

Sorphirðugjald

Öll skip sem koma til hafnar greiða 4.950 kr. per skipti
Skip í legu greiða 4.950 kr. á mánuði
Smábátar greiða 265 kr. á mánuði

Um innheimtu og greiðslu gjalda

Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

Skipstjóri, eigandi og umráðamaður skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafnasamlags Norðurlands bs. vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr.326/2004 um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess, vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.

Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfn og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnanna. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður sem skip hefur siglingu, nema annað sé sérstaklega um samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.

Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.

Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.

Öll gjöld í þessari gjaldskrá eru án vsk.

Gjaldskrá þessi öðlast gildi 1. janúar 2010.

Akureyri 15. desember 2009.

Björn Magnússon
Formaður stjórnar HN

Hörður Blöndal
Hafnarstjóri

Back